15.5.2007 | 07:16
HVER VEGUR AÐ HEIMAN ER VEGURINN HEIM
Jæja, þá er búið að panta farið heim! Verðum heima í 3 vikur sem við skiptum nokkuð jafnt á milli Hornafjarðar og Reykjavíkur - um 10 dagar á hvorum stað. Rebekka er búin að fá vinnu í bæjarvinnunni á Höfn og fer heim á undan okkur, á sjálfan þjóðhátíðardaginn.
Sjáumst í sumar!
Athugasemdir
Get ekki beðið eftir að sjá ykkur, það verður geðveikt stuð hjá okkur...er ekki ennþá búin að panta farið heim fyrir okkur, en er á leiðinni núna að sækja um ný vegabréf fyrir börnin mín, þannig að þetta er allt að koma hjá mér líka. Þetta verður alveg yndislegt, og mikið er mig farið að hlakka til. Sjáumst eftir tæpa tvo mánuði
Bertha Sigmundsdóttir, 15.5.2007 kl. 16:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.