10.2.2009 | 19:50
HÉR ERU ALLIR SPRÆKIR!
Ég varð bara að henda inn nokkrum línum til að láta vita að hér er allt í besta standi, allir hressir og sprækir, bara mikið að gera hjá öllum og lítill tími hjá húsfreyjunni til að stunda bloggskriftir.
Við Óli erum bara að vinna og á þessum tímum er maður virkilega þakklátur fyrir að hafa vinnu. Ég er orðin fastráðin núna, sem er mjög mikils virði hér í Svíþjóð, og líkar vel í vinnunni.
Óli er að stefna á að skreppa heim og austur á Höfn aðeins í næsta mánuði en það er ekkert orðið ákveðið hvenær.
Rebekka er byrjuð í sinfóníuhljómsveit tónlistarskólans og finnst það æðislegt! Hún er auðvitað líka í lúðrasveitinni og lifir og hrærist í tónlist. Rúllar svo upp öllu í skólanum þess á milli. Hún kom heim á þriðjudaginn og læddi út úr sér: ,,Ég var í samræmdu prófi í dag". Já, já - hér er ekkert stress í kringum nationella proven eins og þau heita hér. Prófað er í sænsku, ensku og stærðfræði og tekin nokkur lítil próf á tímabilinu febrúar - maí.
Sesselja er auðvitað alltaf kát og hress. Hún var að syngja sóló og dansa í sýningu um helgina og stóð sig rosalega vel. Hún er á söngleikjanámskeiði og sýningin núna var með atriðum úr þekktum söngleikjum. Hún söng lagið One úr A Chorus Line og lék líka Dóróteu í Galdrakarlinum frá Oz, auk þess sem hún var með í atriðum úr Oliver Twist og Mamma Mia. Það var dálítið skrítið að sjá litlu stelpuna sína standa þarna alveg pollrólega á sviðinu og syngja, skella sér síðan í dans með félögum sínum og ljúka svo atriðinu með því að syngja lagið aftur. Ég get vonandi sett inn smá videó af þessu fljótlega.
Diljá er líka í dansskóla og er farin að hlakka verulega mikið til að byrja í skóla í haust. Já - það er komið að því. Þó að hún sé bara nýorðin fimm er hún alveg að fara að missa tönn og er að æfa sig að lesa Gagn og gaman - og gengur bara vel! Það er leikur að læra og hún elskar það!
Hér er smávetur núna, búinn að vera aðeins snjór og dálítið kalt. Ég vona að vorið komi á sama tíma og í fyrra - í lok febrúar - en grunar samt að mér verði ekki að ósk minni.
Óli er að spila í Músikhúsinu í kvöld með nýjustu hljómsveitinni sinni og Rebekka fór að horfa á. En nú þarf ég að fara að koma skvísunum mínum í háttinn - ég vona að þið hafið það öll gott þarna heima og bið ykkur um að örvænta ekki þó að það sé svolítið lengra á milli bloggskrifa hjá mér núna.
Athugasemdir
Gott er að þið hafið það fínt í Svíaríki
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 20:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.